Jæja..nú verður maður að koma eitthvað blogg hérna til að hressa
uppá þetta.
Byrjum á slúðurpakkanum...
Ási situr núna upp í skakka með stóra tékkneska skiptinemanum og
er að læra að snýta sér með þeim tilþrifum sem tékkinn er þekktur
fyrir hér á röstinni...Ásinn ætlar hefja þessar snýtingar á hærra
plan og stefnir á að vera þekktur af kínversku
samnemendum sínum sem "gaurinn sem yfirgnæfir kennaran með
snýtingsóhljóðum." Hann segir að hann ætli að verða svona
trendsetter og ætlar að koma snýtingum í tísku í kína..
Bóasinn er að landa gríðarstórum samningi við Reykjagarð og
ætlar að hefja útflutning á kjúklingakjöti til kína, hann ku vera
hræddur við að fá fuglaflensuna og ætlar að kynna hreint íslenskt
salmonellusýkt kjúklingakjöt fyrir kínverjum..hann er í óðaönn að
finna slagorð fyrir herferðinni í kína..og hefur undirritaður heyrt
slagorðið: "éttu íslenskar hænur, þú drepst ekki" marg oft á
undanförnum vikum...
Ólafur Karl hyggst ekki fara í þessar hefðbundnu kínasprautur og
hefur verið að láta sprauta sig með hrossasterum undanfarna þrjá
mánuði og hefur verið að panta sér ólöglegt
fuglaflensusýkt hvalkjöt til að byggja upp þol gegn hinni skæðu
fuglaflensu og blæs á allar hugmyndir Sigga og segir
hann "Barnalegan" og hann megi troða Reykjagarðkjötinu
upp í rassgatið á sér..
Tóti fer til Japan og er á fullu á myspace að reyna að
kynnast Japönum þar..hann hefur verið iðinn við það að fara niður
á reykjavíkurhöfn til að dorga, og hefur jafnan farið
með aflan heim til sín og boðið Danna Frey
í sushi..þeir eru víst orðnir það sjóvaðir í súshi gerð að
þeir eru hættir að vefja þetta í rúllur og eru farnir að éta
fiskana á höfninni án þess að gera að þeim..
Addi Fazmo hefur beðið Óla, Bóasinn og Ásan til
að kanna fyrir sig umhverfið útí kína áður en hann heldur þangað og
er hann að spá í því að stofna útibú Fazmo klíkunar þar í
landi ef þremenningarnir sem hann sendir út á undan sér sjá góðan
efnivið í klíkuna..Fazmoinn kýs að láta kalla sig núna Don
Fazmo..
Pálmi fer senn að ljúka sínu skiptinámi en hann var sá eini af
samfélagsmeðlimunum sem fór í skiptinám í sumar...hann ætlaði að
sleppa létt útúr þessari önn og fór í skiptinám í
Hjallastefnuni..hann þarf að hafa fyrir því á næstu önn að fá
þetta nám metið...
Ég sjálfur hef ákveðið það að fara ekkert í skiptinám til asíu
því ég hef búið í litlu asíu frá 8 ára aldri...og ef ég heimsæki
strákana til kína þá mun ég fara fyrst í Æsufellið og veiða nokkra
innfædda innflytjendur í poka og nota sem túlka fyrir mig í asíuni
stóru..
þangað til næst,
GlæsiGámur